Af hverju er alltaf allt flottara sem aðrir gera? Bókin er fyrir yngstu lesendurna og fjallar um afbrýðisemi og hvernig bera má kennsl á hana og vinna bug á henni.
Ásta María Hjaltadóttir, sérkennari, og Þorgerður Ragnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, vinna tilfinningabækurnar út frá aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar. Í bókinni eru, auk skemmtilegra teikninga, skýringamyndir um hvernig hægt er að takast á við erfiðar tilfinningar.