Um Bókstaf
Bókstafur var stofnaður á Egilsstöðum árið 2015. Markmið forlagsins er að halda úti metnaðarfullri útgáfustarfsemi í samstarfi við fagfólk og fyrirtæki á Austurlandi. Bókstafur hefur gefið út íslensk og þýdd skáld- og fræðirit fyrir börn og fullorðna.
Bókstafur hefur einnig tekið að sér þýðingar og ritstjórn fyrir önnur fyrirtæki á Austurlandi.
Hestar
4950 kr
/**/
IS
Hestar hafa löngum verið viðfangsefni teiknarans og málarans Pétur Behrens. Hann kynntist íslenskum hestum þegar í æsku á heimaslóðum. Meðan hann var enn í listnámi ferðaðist hann í fyrsta sinn til Íslands. Með þessu úrvali mynda langar höfundinn að kynna verk sín frá löngum starfsferli fyrir list- og hestaunnendum.
EN
Horses have been an important object in the long career of the artist Pétur Behrens. He got acquainted with the Icelandic horse back home in Germany. While he was still studying arts he visited Iceland for the first time. With...
Músadagar
1990 kr
/**/
Bestu og þakklátustu hlutverk í heimi eru að verða amma og afi.
Sögurnar vinnur Íris Dóróthea Randversdóttir upp úr örsögum sem margar hafa áður birst á Snjáldurskinnu. Bókin er ríkulega myndskreytt af Unni Sveinsdóttur. Í bókinni er brugðið upp myndum úr lífi músaömmu og músaafa með smámýslum sínum í dagsins önn. Það er bakað og brasað og hlegið og glimmerað og skæpað milli skerja. Óhætt er að segja að bókin sé sannkallaður ástaróður til barnabarna. Yndislestur fyrir alla, sérstaklega ömmur og afa!
Einhver Ekkineinsdóttir
990...
Píslirnar hennar mömmu
490 kr
/**/
„Píslirnar hennar mömmu“ er fyrsta ljóðabók Urðar Snædal. Urður er tveggja barna móðir og (fyrirmyndar?) húsmóðir á Akureyri en ætt hennar og uppruni er á Jökuldal. Hún þjáist af ólæknandi kaldhæðni og óviðeigandi húmor. Bókin kemur út í tengslum við Litlu ljóðahátíðina í Norðausturríki, 17. - 20 september 2015. Kápuna hannaði Ingunn Þráinsdóttir.
Skapalón
490 kr
/**/
Skapalón er fimmta ljóðabók Lubba klettaskálds. Hún kom fyrst út í litlu upplagi hjá höfundi árið 2012 en verður endurútgefin hjá...
Þungir skrifborðsþankar
Sigurjón Bjarnason bókari á Egilsstöðum hefur um árabil ritað pistla þar sem hann setur fram ýmsar hugleiðingar sínar um lífið og tilveruna, stjórnmál, skattamál, félagsmál og siðalögmál. Hann hefur nú sent frá sér bókina „Þungir skrifborðsþankar“ þar sem hann birtir úrval þessara greina sinna sem sumar hafa birst áður í blöðum eða á netinu.
Of mörg orð
Góðærið er í algleymi og tiltölulega ung kona lendir í því að verða fullorðin. Sigríður Lára veltir fyrir sér íslensku samfélagi, barneignum, þunglyndi, hryllingsmyndum...
Stundum verðum við reið
1490 kr
/**/
Stundum verðum við reið er bók fyrir yngstu lesendurna. Hún fjallar um reiðina og hvernig hægt er að taka á málum þegar hún nær yfirhöndinni.
Ásta María Hjaltadóttir, sérkennari, og Þorgerður Ragnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, vinna tilfinningabækurnar út frá aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar. Í bókinni eru, auk skemmtilegra teikninga, skýringamyndir um hvernig hægt er að takast á við erfiðar tilfinningar.
Þekkir þú afbrýðisemi
1490 kr
/**/
Af hverju er alltaf allt flottara sem aðrir gera? Bókin...
101 Austurland - Gönguleiðir fyrir alla
4950 kr
/**/
Í þessari bók er að finna nákvæmar lýsingar á skemmtilegum gönguleiðum sem henta allri fjölskyldunni ásamt kortum, upplýsingum um hækkun, göngutíma, vegalengd, gps-hnit og allt sem göngufólk þarf að vita áður en lagt er af stað.
Skúli Júlíusson er fæddur árið 1974 og ólst upp á Egilsstöðum. Hann hefur starfað sem fjallaleiðsögumaður á Austurlandi frá árinu 2009 og safnað að sér ógrynni af efni um gönguleiðir á Austurlandi.
Hann hefur áður sent frá sér bókina 101 Austurland – Tindar og toppar, þar sem lýst er leiðum...
Rachel fer í frí
990 kr
/**/
Leyfið mér að kynna Rachel Walsh. Hún notar skó númer 42 og svo mikið af eiturlyfjum að fjölskylda hennar pungar út dágóðri summu fyrir dvöl í Klaustrinu, fínustu meðferðarstöð Írlands.
Eina ástæða þess að hún samþykkir að fara þangað er orðrómur um að þar gefi að líta gufuböð, líkamsrækarstöðvar og heilsulindir svo langt sem augað eygir, þéttsetnar rokkstjörnum í fráhvörfum.
Svo þarf hún líka að komast í frí.
Fjölskyldan heldur hins vegar áfram að verða henni til skammar. Klaustrið er ekki alveg eins og sögusagnir hermdu og … hvers vegna...